01.04.2006 02:12:55 / zuki

Til hamingju ég

Jæja góðir hálsar

í dag er merkisdagur , merkisdagur sagði ég! Ég og valli erum búin að vera saman í hálft ár í dag ! Sjitt hvað tíminn er búinn að vera fljótur að líða! Á þessu hálfa ári er mikið búið að gerast

  • Við fórum til spánar
  • Fluttum í hafnarfjörðinn
  • Fluttum svo til tengdó á meðan við byðum eftir hinni íbúðinni
  • Fluttum í Kópavoginn.
  • Ég skipti 2 sinnum um vinnu
  • og bara gerði margt svo geðveikt skemmtilegt.

Mér finnst hálft ár kannski ekki vera svo langur tími en ég hef aldrei verið eins ástfangin og hefur aldrei liðið svona geðveikt vel þó að ég eigi alveg mína skapvonskudaga en Valli fær mig alltaf til að brosa. Fyrir hálfu ári var allt í klessu og ég var eiginlega bara á leiðinni að flytja út til mömmu og pabba og var ekki að meika
rassgat.

Svo hittumst við Valli í bænum eitt laugardagskvöldið og kom hann með mér heim og ég hef eiginlega bara ekkert losnað við hann síðan :) og er sko mjög ánægð með það. Við erum náttúrulega búin að þekkjast í allaveg 7 eða 8 ár þannig að við þurftum ekkert að eyða tíma í að kynnast , urðum bara strax kærustupar :)

Elska þig Vallinn minn , þú ert ljósiðí lífi mínu og ég veit ekki hvað ég  myndi gera án þín. Þú ert klárlega það besta sem hefur komið fyrir mig ever. Þú ert yndislegasta manneskja sem ég hef kynnst og ætla sko aldrei að sleppa þér.

Lovja beibe

Þín Árný


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 17:36:24 / zuki

Gaman gaman

Stal þessu hjá Þórdísi . ALLIR AÐ SVARA - Valli þú líka

1. Hvað heiti ég fullu nafni?

2. Hvernig bíl á ég?

3. Uppáhalds litur?

4. Uppáhalds stelling?

5. Hverjum finnst mér vera fallegastur?

6. Hver er druslan mín?

7. Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú hugsar um mig?

8. Hvenar gifti ég mig og hverjum??

9.Hvert er ég að fara í sumar?

10. Elskar hann mig?


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 22:01:49 / zuki

Kuldi......

Ohhh pabbi var að fara til spánar í dag ..... sjitt hvað ég er að öfunda hann akkúrat núna , það er svo fokk kalt úti að það er rugl.

Mig langar svo með pabba langar svo að hitta mömmu og krakkanna , farin að sakna þeirra ansi mikið. Það er svo skrítið að hafa þau ekki í næsta bæjarfélagi heldur bara í einhverju
allt öðru landi. Vonandi getur maður kíkt eitthvað til þeirra í sumar. Langar samt ógeðslega að fara núna um páskana , amma og afi eru að fara og vinkona hennar Rögnu en Auðunn orri kemur með pabba eftir 3 vikur og sjitt hvað ég ætla að dekra hann á meðann hann er hérna.

Pælingin í sumar er að fara á hróaskeldu og vera þar í viku og fljúga svo frá köben yfir til Alicante og heimsækja gamla settið og reyna að vera þar í 2 vikur. Hef reyndar  aldrei farið í svona langa utanlandsferð á ævinni , það lengsta hefur verið spánn í 2 vikur og þá var mig farið að hlakka til að koma heim. Þá einmitt kom hrefna lind með mér í viku og það var svo gaman hjá okkur
kynntums strák sem við vorum báðar skotnar í og fórum að rífast um . Það endaði náttla í tárum og smá drama og við komumst að því að vináttan var mikilvægari en nokkur strákur að nafni Dave frá Newcastle sem var by the way bara 16 ára (við vorum 18 þá) . Svo var ég náttla í 2 vikur um jólin úti með valla hjá mömmu og pabba og það var alveg æðislegt. Jólin náttla komu þar inn í þannig að manni fannst þetta allt of stuttur tími.

Allavega ....

Er að vinna núna og er búin eftir klukkutíma .... ohh hvað mig hlakkar til að komast heim upp í sófa og horfa á tv og slaka á.

Bless í bili


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 17:25:36 / zuki

!!!!

Stal þessu af annari síðu en.......

Muniði eftir þessum......


Lafði lokkaprúð


Litlu folarnir


Kærleiksbirnirnir


Gúmmíbirnirnir


Glóálfarnir


Regnbogabirta


Línan


Snorkanir


Skófólkið

» 11 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 20:51:02 / zuki

Fermingarveislur ... good shit

Jæja þá er þessi helgi búin .... hún var alveg mjög hressandi.

Á föstudaginn vorum við að vesenast út um allt og fórum svo og hittum Bryndísi og Laufey á kaffibrennslunni. Þar var bryndís auðvitað byrjuð í bjórnum , einhvernvergin kom sú hugmynd upp að við ættum að skella okkur í road trip og var á endanum ákveðið að skella sér á Búðardal í heimsókn og fara svo á laugardeginum á Laugarvatn.

Við skemmtum okkur konunglega 4 á pöbbnum í Búðardal og á leiðinni heim (hinumegin við götuna) hljóp ég á tré/spítu og meiddi mig geðveikt. Svo á laugardeginum fórum við í bæinn og hættum við að fara á laugarvatn og ég fór til læknis og lét kíkja á löppina þar sem að ég fann ekki fyrir henn var bara alveg tilfinningalaus. En það var líklega marin taug , þess vegna fann ég ekki fyrir löppinni,

Svo um kvöldið kíktum við aðeins í innflutningspartý til Rabba frænda hans Valla og þar voru allir gjörsamlega hauslausir þar.

í dag byrjuðum við á því að fara í fermingju hjá frænku hans valla , kíktum eftir það í heimsókn til kollu frænku og Halla. Eftir það fórum við í aðra fermingarveislu hjá frænda mínum og hitti þar fullt af fólki sem ég hef ekki hitt í nokkur ár. En snilldarframtak í þeirri fermingu , það var bingó og páskaegg í verðlaun sem skapaði svaka skemmtilega stemmningu.

Er núna hjá tengdó og tengdapabbi er að elda fyrir okkur öll gæs sem verður gaman að smakka ég hef aldrei smakkað gæs áður. Ef  ég spring í kvöld þá er það vegna þess að æeg er búin að borða svo mikið í dag. Þá vil ég  þakka öllum sem ég hef kynnst um ævina.

Takk fyrir mig


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 20:14:32 / zuki

PIZZA

Jæja mín búin að vera ansi löt  við bloggið.......

Eins og áður þá er nýja vinnan algjör snilld ég elska hana. Var á námskeiðum í gær og fyrradag og í fríi í dag. Nýtti daginn í dag í að skjótast um allann bæ og redda ýmsum hlutum, langt síðan maður hefur verið í fríi að degi til =) Svo er  ég að vinna á morgun og fæ svo 3 daga helgarfrí. 

Vallinn minn er núna að baka fyrir mig pizzu ... ummm elska heimabakaða pizzu og ELSKA Vallann minn :) .

Er boðið í fermingu á Sunnudaginn .. langt síðan ég fór í fermingu seinast. sjitt Ragna ýr er að fara að fermast á næsta ári. Mér finnst ég vera orðin svo geðveikt gömul allt í einu , það ætti sko að vera þannig að hún verður eldri en ég stend í stað , það væri sko magnað. Það væri soldið töff ef maður gæti náð vissumaldri og bara stoppað þar í smá tíma ef manni líður vel :)

Jæja ætla að skunda mér í sturtu og að borða og kíkja svo á kaffihús.

l8ter


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 21:23:10 / zuki

Föstudagur til leti

Ég er svakaleg. Ég gleymi alltaf að svara sms-um , legg frá mér símann í 5 sec og er búin að gleima því strax..stundum er ég með algjört gullfiskaminni og svo eru aftur ámóti sumir hlutir sem ég bara gleimi aldrei.Þannig að taka því neitt illa ef
ég svara ekki sms-um ég er bara gullfiskur.

Var að vinna í dag til 18 og kom svo heim og eldaði mér pasta, tókst að elda það án þess að brenna neitt við ! Þetta er allt að koma, ætli ég nái einhverntíma að læra að elda eitthvað án þess að skemma það? Þessi pastaréttu var allavega smá framför.

Nýja vinnan er algjör snilld... er búin að vera að svara ein í símann í 3 daga og gengur betur og betur með hverjum degi. Fólkið sem ég er að vinna með er æðislegt og þó að maður viti ekki eitthvað þá bara spyr maður og allir eru til í að hjálpa manni. Það er sko langt síðan mér fannst seinast sona gaman í vinnunni.

Er að bíð eftir Hrefnu núna hún ætlaði að kíkja á mig eftir idolið. Vona að hún fari að koma er að deyja úr leiðindum.

Hvað er annars planið um helgina???


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 23:27:27 / zuki

Færsla fyrir njósnarann mýmí

Mýmí er best og sætust og mesta dúlla í öllum heimi =)

Þessi færsla er tileinkuð þér elskan mín .

Janúar er bestur .


» 9 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 02:08:23 / zuki

helgin já

Jæja þá er helgin búin ....

Bara nokkuð góð sko .... fór á árshátíð í gærkvöldi hjá símanum og ég hef aldrei séð svona mikið lagt upp úr árshátíð , skreitingarnar voru geggjaðar , skemmtiatriðin geggjað skemmtileg . Þetta byrjaði á hanastéli kl 5-7 þar sem var frítt áfengi þannig að margir voru komnir vel í glas þegar fordrykkurinn byrjaði klukkan 7. Kl 8 fór maður inn í sal og fékk rosa flottan forrétt , aðalrétt og forrétt sem ég víst missti af , tók ekki einusinni eftir að hann hefði verið borinn fram. :) .

Dagurinn í dag fór nú bara í rólegheit og megachill , svo komu mýmí og frikki að sækja mig og skutttluðu mér að ná í bílinn. Svo fór ég að sækja helgu og við fórum að hitta Elvu , Önnu Bergmann , Jenný og Guðný Maríu að skipulegggja reunion. það gekk bara rosalega vel og svona flest allt komið á hreint. sjá www.blog.central.is/oldo85 fyrir þá sem voru í öldó =)

Allavega ... er að horfa á sex in the city núna og ætla að fara að koma mér í rúmið

Góða nótt allez

Munið að vera dugleg að commenta svo ég viti hverjir eru að njósna um mig :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 18:43:08 / zuki

Jarðskjálfti.is

Funduði jarðskjálftann???? Heheh var í vinnunni á náskeiði og einn kom inn og sagði hei funduði jarðskjálftann???´´eg alveg jess ég er ekki klikkuð ....

Jarðskjálftar minna mig alltaf á suðurlandskjálftann ...

Það komu nú margir en þegar sá stærsti kom þá sat ég með systur minni út í bíl fyrir utan vídjóleigu á selfossi ... kærastinn hennar þáverandi hljóp inn að skila spólu og við héldum að hann væri kominn út og væri ða fíbblast og hrista bílinn en þegar bíllinn var farinn að hristast ansi mikið og við sáum kærastann hennar ekki þá áttuðum við okkur hehe ljóskurnar við systur.

Svo seinna um daginn vorum við í eden að fá okkur að borða og svo kom annar jarðskjálfti og og við héldum virkilega að eden væri að hrynja ... það hljæop fólk um allt og litlir krakka fóru að gráta ... þetta var soldið fyndið móment ... had to be there móment

Þegar ég var so komin heim vaknaði ég um nóttina og fór á klósettið og þá kom annar skjálfti á meðan ég var á klósettinu ..... MJÖG spes tilfinning ... svo þegar ég kom inn í herbergi þá hafði allt hrunið úr hillunni minni sem var fyrir ofan rúmið og ef ég hefði ekki þurft að pissa þá hefði ég sko steinrotast og fengið einhverja skurði í andlitið .... heppin ég að hafa þurft að pissa ... hehe

Allavega .... er að fara að vinna uppi í hrauni er núna niðri í vinnu hjá pabba , var að þrífa ýkt dugleg ... nenni ekki að fara heim á milli .... allt of stuttur tími ... mundi rétt ná að koma heim og þurfa svo að leggja af stað strax aftur .

Ætla að fara að fá mér að borða áður en ég fer að vinna

L8ter

Árný símamær - alltaf í klíkunni


» 9 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 00:32:07 / zuki

góður

Varð að stela þessum hjá henni Jóku þessi er snilld !!!

Limurinn, óskar hér með eftir kauphækkun vegna neðangreindra ástæðna:

* Ég stunda líkamlega starf.
* Ég fer langar leiðir.
* Ég sting hausnum fyrst í allt sem ég geri.
* Ég fæ ekki frí um helgar og helgidaga.
* Ég starfa í votu umhverfi.
* Ég fæ ekki launaða yfirvinnu.
* Vinnuaðstaðan mín er dimm og hefur slæma loftræstingu.
* Ég starfa í háum hita.
* Starf mitt setur mig í smithættu sjúkdóma.


Kæri limur.
Eftir að hafa skoðað beiðni þína til hlýtar og þau rök sem þú settir fram, hefur stjórnin ákveðið að neita beiðni þinni vegna neðangreindra ástæðna:

Þú starfar ekki samfellt í 8 stundir.

  • Þú sofnar í starfi eftir stutta vinnu.
  • Þú fylgir ekki fyrirmælum stjórnenda þinna.
  • Þú stendur þig ekki í settri stöðu, þú ferð oft á flakk.
  • Þú hefur ekki frumkvæði - það þarf að ýta við þér og hvetja þig svo þú farir að starfa.
  • Þú skilur starfssvæði þitt eftir frekar sóðalegt eftir vakt.
  • Þú tekur oft ekki mark á öryggisreglum t.a.m. vera í réttum varnarklæðum.
  • Þú ferð á ellilaun mikið fyrr en 65 ára.
  • Þér er ekki gert að vinna tvöfaldar vaktir.
  • Þú átt það til að yfirgefa stöðu þína áður en þú hefur lokið dagsverki.
  • Að lokum þá hefurðu oft verið séður berandi tvo poka inn og út úr starfsaðstöðu þinni sem lýta mjög grunsamlega út.

    Virðingarfyllst,
    Stjórnin

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 18:34:12 / zuki

fuglaflensa?

Haldiði ekki að stelpan hafi náð sér í inflúensu .... er ég heppin eða er ég heppin. ég drullaði mér til læknis í dag og fékk pensilín og skipun um að leggjast í rúmið. :S

Planið um helgina er þess vegna bara feitt chill og rólegheit ... heimsóknir vel þegnar!!! Annars er dagurinn í dag betri en í gær og það er góðs viti .. ég var gjörsamlega að springa úr pirringi í gær .... hehe

Er að ná mér í one tree hill þætti til að horfa á og mig hlakkar svooo til þegar þetta er komið =) elska one tree hill og oc ... svona dramatík er eitthvað sem mér finnst skemmtilegt :)

Annars bara endilega hringið ... mér leiðis !!!!!!!!

L8ter

ekki lengur bitra stelpan Árný


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 21:55:19 / zuki

one of these fokkings days

Afhverju getur maður verið svona anskoti klikkaður í hausnum og geðveikur stundum? Afhverju þarf maður að stressa sig yfir hlutum sem að maður getur ekkert breytt og þarf bara að sætta sig við? ARRRRRRRRRRG

Ég er búin að vera GEÐVEIK í skapinu í dag og ég veit ekkert afhverju , ég er ekki að nenna að vera sona er búin að gera allt til að reyna að koma mér í gott skap. Kannski er þetta bara one of these days. Við Valli erum búin að vera að vinna mikið á sitthvorum tímunum þannig að við erum lítið að hittast, kannski er það að fara í mig , æi veit ekki. ég tek ofan fyrir pörum sem eru að meika fjarsambönd því að ég svo sannalega sagt það að ég mundi aldrei í lífinu meika það.

Góðu punktarnir eru þó     

  • Komin í æðislega vinnu
  • Hætt að vinna í verslun!
  • Flutt í geggjaða íbúð

Annars verð ég að taka undir umræðuna hennar Hildu ..... Hvað er sona töff að ver 13 ára í netasokkabuxum og mini pilsi? Mér finnst persónulega þetta vera allt of ungur aldur það er varla að sumar stelpur séu í fötum þær eru i svo flegnum bolum og stuttum pilsum .... ef þú vilt sýna líkamann þinn BÍDDU ALLAVEGA ÞANGAÐ ÞÚ ERT ELDRI OG ERT KANNSKI KOMIN MEÐ BRJÓST OG RASS! 13 ára stelpur eiga ekki að klæða sig eins og mellur!

Geðveikin er alveg að fara með mig !

GÓÐA NÓTT !!!

 BITRA STELPAN ÁRNÝ


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 20:33:16 / zuki

jejeje

Jæja þá sit ég hérna á kaffihúsi með Tinnu og Lilju svaka stemmari á okkur... Fartölfur eru snilld !!!!

Annars er það að frétta að maður er byrjaður að vinna hjá símanum og er núna bara á námskeiðum út þessa viku og næstu viku. Maður er búinn að vera á milljón að reyna að redda vöktum í hinum tvem vinnunum bara til þess að geta mætt á þessi námskeið. Vallinn minn nennti að vinna fyrir mig þannig að hann tók 2 næturvaktir fyrir mig því að hann var í fríi í sinni vinnu.

Nýja vinnan er algjör snilld og mér lýst svo geðveikt vel á þetta allt saman. Frábær laun og bara æðislegt fólk! Við erum 9 sem erum að byrja á sama tíma og þetta er frábær hópur.

Allavega ætla að fara að spjalla við stelpurnar

l8ter

Árný


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti